Fjölskyldunefnd, fundur 57
20. apríl 2026, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Helga Rakel Arnardóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Líneik Anna Sævarsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 414 liður 7
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 20. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Mál 2601101 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að vinna málið áfram. Tekið fyrir að nýju á næsta fjölskyldunefndarfundi.
-
2. Úthlutunarlíkan grunnskóla 2026-2027
Mál 2604081 Allur ferill málsins
Fyrri umræða að úthlutun til grunnskóla 2026-2027. Fjölskyldunefnd samþykkir að vísa úthlutun kennslutímamagns til síðari umræðu.
-
3. Úthlutun til leikskóla 2026-2027
Mál 2604090 Allur ferill málsins
Fyrri umræða að úthlutun til leikskóla fyrir 2026-2027. Fjölskyldunefnd samþykkir að vísa úthlutun kennslutímamagns til síðari umræðu.
-
4. Beiðni um kaup á stólum
Mál 2603035 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir erindið og vísar því til umræðu við fjárhagsáætlunargerð næsta árs.
-
5. Nauðsynlegar framkvæmdir við knattspyrnuvöllinn á Búðagrund á Fáskrúðsfirði.
Mál 2604086 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd þakkar erindið og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að ræða við ritara meðfylgjandi bréfs.
-
6. Skýrsla stjórnenda - félagsþjónusta og barnavernd
Mál 2311096 Allur ferill málsins
Stjórnandi félagsþjónustu kynnir helstu mál á sviði félagsþjónustu og barnaverndar.