Fjölskyldunefnd, fundur 33
19. maí 2025, kl. 16:15 til 18:20, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Magnús Árni Gunnarsson
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Líneik Anna Sævarsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 896 liður 15
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 19. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 398 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 19. maí staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
Mál 2306119 Allur ferill málsins
Helga Elísabet Guðlaugsdóttir, Teymisstjóri heimaendurhæfingarteymis HSA og Helga Sól Birgisdóttir, Forstöðumaður heimaþjónustu kynntu samvinnu kerfanna tengda verkefninu Gott að eldast. Farið var yfir hlutverk sameiginlegs móttöku og matsteymis (MóMA) ásamt hugmyndafræði heima endurhæfingar og notkun á sjálfsmatstækinu WHODAS þar sem einstaklingurinn metur færni sína. Einnig fóru þær yfir dæmigert ferli umsóknar um þjónustu og mögulegar þjónustuleiðir.
-
2. Starfsáætlun fjölskyldunefndar 2026
Mál 2505063 Allur ferill málsins
Fyrstu drög að starfsáætlun fjölskyldusviðs kynnt fyrir nefndinni.Sviðstjóra fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram.
-
3. Þjónustugjald þjónustuíbúða í Neskaupstað endurskoðun
Mál 2505095 Allur ferill málsins
Sviðstjóri fjölskyldusviðs fer yfir þróun og innihald þjónustugjalds í þjónustuíbúðum aldraðra Breiðabliki. Sviðstjóra falið að kanna lagaheimildir varðandi öryggisvöktun þjónustuíbúða. Sviðstjóri mun einnig funda með íbúum Breiðabliks.
-
4. Húsnæði Nesskóla 2025
Mál 2505069 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá starfsmönnum Nesskóla varðandi húsnæði skólans og þrengsla vegna þess að ekki er hægt að nýta fyrri aðstöðu tónlistarskóla. Verið er að vinna að því að meta ástand húsnæðisins í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2026. Fjölskyldunefnd vísar erindinu til áframhaldandi vinnu innan skipulags- og framkvæmdasviðs og starfshópi um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar.
-
5. Öldungaráð - ýmislegt
Mál 2505050 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd fagnar erindinu og vísar því áfram til skipulags- og framkvæmdanefndar.
-
6. Öldungaráð - ýmislegt
Mál 2505050 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir erindið og vísar því áfram til skipulags- og framkvæmdanefndar.
-
7. Búsetukjarni og skammtímavistun
Mál 2301106 Allur ferill málsins
Farið yfir afhendingu og vígslu búsetukjarna og skammtímavistunar.
Drög að dagskrá kynnt fyrir fjölskyldunefnd.