Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjallskilanefnd

Fjallskilanefnd, fundur 7

20. ágúst 2025, kl. 16:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Arnór Ari Sigurðsson, varaformaður
  • Marsibil Erlendsdóttir, aðalmaður
  • Sunna Júlía Þórðardóttir, aðalmaður
  • Steinn Björnsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 41 liður 2

    Fundargerð 7. fundar Fjallskilanefndar lögð fram til staðfestingar. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir fundargerðina og vísar henni í bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.

  • Bæjarráð, fundur 913 liður 27

    Fundargerð fjallskilanefndar frá 21. ágúst lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 403 liður 11

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð fjallskilanefndar frá 21. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjallskil og gangnaboð 2025

    Mál 2508090 Allur ferill málsins

    Fjallskil og gangnaboð 2025. Fjallskilanefnd samþykkir hjá lagt gangnaboð og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að senda gangnaboðið á fjáreigendur og stjórnsýslu Múlaþings.

  2. 2. Erindi til SÍS - Verklagsreglur um smölun ágangsfjár

    Mál 2307016 Allur ferill málsins

    Regluverk um búfjárbeit, sjónarmið matvælaráðuneytis. Fjallskilanefnd þakkar kynninguna.

  3. 3. Fjárréttir í Fjarðabyggð

    Mál 1808042 Allur ferill málsins

    Fjárréttir í Fjarðabyggð. Fjallskilanefnd leggur til að farið verði sem fyrst í niðurrif á rétt við Breiðdalsá þar sem réttin er ekki notuð og stafar af henni fokhætta. Jafnframt er lagt til að farið verði í lagfæringar og niðurrif að hluta á rétt við Þorgrímsstaði, Breiðdal fyrir haustið 2026. Í Stöðvarfirði er lagt til að farið verði í lítilsháttar lagfæringar á Hvalnesrétt fyrir göngur 2025.

    Framkvæmdum við nýja fjárrétt í Norðfirði er nánast lokið og ítrekar fjallskilanefnd að framkvæmdum þar verði lokið fyrir fyrstu göngur haustið 2025.