Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 177

12. mars 2024, kl. 16:15 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 839 liður 14

    Fundargerð 177. fundar félagsmálanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 374 liður 4

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 12. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samningur Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu og fullnaðargreiðsluumboð

    Mál 2301026 Allur ferill málsins

    Samningur Fjarðabyggðar og sveitarfélagsins Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu og fullnaðarafgreiðsluumboð kynntur.

    Félagsmálanefnd felur stjórnanda barnaverndar og innleiðingar farsældar í Fjarðabyggð að gera minnisblað fyrir bæjarráð.

    Félagsmálanefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og vísar til bæjarráðs.

  2. 2. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Stjórnandi barnaverndar fer yfir sískráningu til barnaverndarstofu.

  3. 3. Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd

    Mál 2311096 Allur ferill málsins

    Stjórnendur fjölskyldusviðs fara yfir stöðu mála í félagsþjónustu og barnavernd.

    Félagsmálanefnd þakkar greinargóða kynningu.

  4. 4. Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA

    Mál 2306119 Allur ferill málsins

    Starfsmenn félags- og vinnumarkaðsráðuneytis komu í heimsókn til Fjarðabyggðar til að vinna með starfsfólki fjölskyldusviðs og formanni félagsmálanefndar að verkefninu Gott að eldast. Fyrstu drög að handbók um útfærslu verkefnisins í Fjarðabyggð kynnt fyrir félagsmálanefnd.

  5. 5. Búsetukjarni og skammtímavistun

    Mál 2301106 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd fagnar samstarfsyfirlýsingu Fjarðabyggar og R101 ehf vegna byggingar á sjö íbúða búsetukjarna.

    Með byggingu búsetukjarnans verður stigið tímamótaskref í þjónustu við fatlað fólk auk þess sem boðið verður upp á skammtímavistun fyrir fötluð börn.

    Félagsmálanefnd voru sýndar teikningar. Stefnt er að því að taka húsið í notkun á árinu 2025.