Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 170

11. október 2023, kl. 16:15 til 18:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Aðalheiður B Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Þórhallur Árnason, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Dagskrá

  1. 1. Forvarnir og fræðsla 2023

    Mál 2306007 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leiti að forvarnarteymi Fjarðabyggðar vinni að endurnýjun forvarnaráætlunar.

    Vísað til deildarstjóra tómstunda- og forvarnarmála til úrvinnslu.

  2. 2. Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta

    Mál 2309017 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd vísar erindinu til sviðsstjóra fjölskyldusviðs til áframhaldandi vinnu í starfs- og fjárhagsáætlun.

  3. 3. Erindi Jaspis ágúst 2023

    Mál 2308173 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd þakkar fyrir erindið. Nefndin styrkir starf félaga eldri borgara með reglubundnum framlögum en að svo stöddu getur nefndin ekki styrkt starfið frekar þar sem fjárheimild er ekki til staðar.

  4. 4. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024

    Mál 2309168 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leiti að hækka gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024 um 12,5% og vísar málinu áfram til bæjarráðs.

  5. 5. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik

    Mál 2309170 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir að hækka gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2024 um 7,7% og vísar málinu áfram til bæjarráðs.

  6. 6. Styrkumsókn - breyting á ferðaþjónustubíl

    Mál 2309182 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd þakkar fyrir erindið. Félagsmálanefnd getur ekki séð sér fært um að veita umbeðinn styrk.

  7. 7. Ráðstefna um fíknistefnu

    Mál 2310040 Allur ferill málsins

    Boð á ráðstefna um fíknistefnu kynnt.

  8. 8. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024

    Mál 2305070 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri kynnti starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024. Félagsmálanefnd felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna áfram að starfs- og fjárhagsáætlun.