Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 144

11. maí 2021, kl. 16:15 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Óskar Sturluson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 711 liður 26

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 10.maí lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 313 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Notendaráð og samráðshópar 2021

    Mál 2104073 Allur ferill málsins

    Helga Elísabet kynnir minnisblað sviðsstjóra, þar sem lögð er fram hugmynd um stofnun notendaráðs allra notenda félagsþjónustu Fjarðabyggðar, skv. félagsþjónustulögum og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Nefndin samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  2. 2. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð

    Mál 1904072 Allur ferill málsins

    Formaður nefndarinnar kynnir drög að skýrslu Eflu um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð.

  3. 3. Skammtímadvöl á Bakkabakka 2022

    Mál 2105041 Allur ferill málsins

    Helga Elísabet kynnir minnisblað um rekstur skammtímadvalar fyrir fullorðna á Bakkabakka. Fjölskyldusvið leitast við að styðja fullorðið fatlað fólk til sjálfstæðs lífs með stuðningsþjónustu á heimili og félagsumhverfi. Nefndin samþykkir tillöguna sem fram kemur í minnisblaðinu fyrir sitt leyti og vísar til Bæjarráðs.

  4. 4. Frístundaúrræði allra barna 2021

    Mál 2104111 Allur ferill málsins

    Helga Elísabet kynnir minnisblað sviðsstjóra um frístundaþjónustu fatlaðra barna í Fjarðabyggð. Nefndin samþykkir tillögurnar sem fram koma í minnisblaðinu fyrir sitt leyti. Tekur undir að þörf er fyrir frístundaþjónustu fyrir fötluð börn yfir vetrartímann auk þess sem skylt er að veita þjónustuna einnig yfir sumarið. Verið er að stórauka þjónustu við fötluð börn í Fjarðabyggð í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022

    Mál 2104133 Allur ferill málsins

    Óskar kynnir reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022. Kynnt er að formaður nefndarinnar þurfi að funda með fjármálastjóra og bæjarstjóra ásamt stjórnendum sviðsins fyrir næsta fund nefndarinnar sem áætlaður er þann 8. júní nk. Starfsáætlun þarf að liggja fyrir á þeim fundi nefndarinnar, enda þarf að leggja hana fyrir bæjarráð þann 11. s.m.