Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 240

2. september 2019, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 629 liður 11

    Framlögð fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. september s.l. til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 274 liður 5

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Verkaefnalisti fyrir Skíðamiðstöðina í Oddskarði

    Mál 1710048 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra, íþrótta- og tómstundafulltrúa og sviðsstjóra framkvæmdasviðs um forgangsröðun á verkefnum og kostnaði framkvæmdaliða vegna endurbóta á skíðasvæðinu í Oddsskarði, dagsett 16. maí 2019. Bæjarráð hefur staðfest forgangsröðunina eins og hún er sett fram í minnisblaði og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að halda utan um verkefnið og kostnað vegna þess. Vísað til kynningar í íþrótta- og tómstundanefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd frá bæjarráði.

  2. 2. Umhverfisviðurkenning 2019

    Mál 1907064 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra er varðar umhverfisviðurkenningu Fjarðabyggðar 2019, dagsett 15. júlí 2019. Lagt er til að fyrirkomulag verði óbreytt frá síðasta ári.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu í minnisblaði og felur umhverfisstjóra að fylgja því eftir.

  3. 3. Fjárréttir í Fjarðabyggð

    Mál 1808042 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um fjárréttir í Fjarðabyggð haustið 2019 og tillögur landbúnaðarnefndar á úrbótum á réttum og aðstöðu til fjárdrags, dagsett 29. ágúst 2019.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd er samþykk tillögum landbúnaðarnefndar og felur umhverfisstjóra úrvinnslu þeirra og leggja fyrir nefndina að nýju.

  4. 4. Efnistaka í Hellisfirði í Norðurfjarðarflóa, Fjarðabyggð. Tillaga að matsáætlun - Beiðni um umsögn

    Mál 1907110 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 29. júlí 2019, um umsögn á tillögu að matsáætlun vegna efnistöku í Hellisfirði í Norðfjarðarflóa samkvæmt 2. mgr. 8. gr. lagna nr. 106/2000 og 17. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að tillagan geri nægilega grein fyrir framkvæmdinni og umhverfi hennar.

  5. 5. 735 Strandgata 13 - Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 1907084 Allur ferill málsins

    Lögð fram stöðuleyfisumsókn Einars Sverris Björnsson, dagsett 22. júlí 2019, þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir tvo gáma á lóð KR-ÍA veitingasölu ehf að Strandgötu 13 á Eskifirði. Sótt er um leyfi til að láta gámana standa til 1. ágúst 2028.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stöðuleyfi til 1. ágúst 2020.

  6. 6. 730 Nesbraut 6 - umsókn um stöðuleyfi

    Mál 1908085 Allur ferill málsins

    Lögð fram stöðuleyfisumsókn Þorsteins Erlingssonar, dagsett 26. ágúst 2019, þar sem óskað er eftir stöðuleyfi gám á lóð Og Sona/Ofurtólið ehf að Nesbraut 6 á Reyðarfirði. Sótt er um leyfi til að láta gáminn standa til 1. september 2021.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stöðuleyfi til 1. september 2020.

  7. 7. 730 - Búðareyri 25, umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

    Mál 1908057 Allur ferill málsins

    Lögð fram stöðuleyfisumsókn Þvottabjörns ehf, dagsett 19. desember 2019, þar sem óskað er eftir stöðuleyfi gám á afnotalóð fyrirtækisins að Búðareyri 25 á Reyðarfirði. Samþykki lóðarhafa liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stöðuleyfi til 2. september 2020.

  8. 8. 735 Strandgata 46b - umsókn um lóð

    Mál 1908080 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Fjarðaþrifa ehf, dagsett 22. ágúst 2019, þar sem sótt er um lóðina við

    Strandgötu 46c á Eskifirði undir atvinnuhúsnæði. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um lóðina við Strandgötu 46b á Eskifirði, dagsett 30. ágúst 2019.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki úthlutað lóðinni þar sem hún er í eigu einkaaðila. Þá er óvíst hvort hægt verði að byggja á lóðinni vegna ofanflóðavarna í Lambeyrará.

  9. 9. 740 Bakkavegur 5 - umsókn um stækkun lóðar

    Mál 1908119 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn SÚN, dagsett 30. ágúst 2019, þar sem sótt er um stækkun lóðarinnar við Bakkaveg 5 á Norðfirði til vesturs að göngustíg samsíða Bakkalæk. Gert er ráð fyrir að stækkun verði nýtt fyrir viðbyggingu við núverandi húsnæði á lóðinni. Leiksvæði á umræddu svæði hefur verið aflagt.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina. Grenndarkynning nái til Nesbakka 1-11 og Starmýrar 2.

  10. 10. 735 Dalbraut 4 - Beiðni um að aðveitustöð verði færð

    Mál 1908054 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Guðjóns Antons Gíslasonar varðandi flutning aðveitustöðvar Landsnets úr íbúabyggð, dagsett 18. ágúst 2019. Þess er farið á leit við nefndina að óskað verði eftir því við Landsnet að aðveitustöðin við Dalbraut 4 á Eskifirði verði færð fjarri íbúðarbyggð. Lagður fram póstur Landsnets vegna fyrirspurnar um mögulegan flutning aðveitustöðvarinnar dagsettur 2. september 2019 þar sem fram kemur að ekki sé möguleiki á færslu stöðvarinnar á þessu stigi.

  11. 11. 715 Brekka - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir ljósleiðara og rafstreng

    Mál 1804086 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Neyðarlínunnar ohf um heimild Fjarðabyggðar til að leggja ljósleiðarastreng og rafstreng í jörðu um landssvæði innan sveitarfélagsins, frá Brekku í Mjóafirði að Brekkugjá upp af Austdal en þar á að tengjast áður lögðum ljósleiðara og rafstreng. Samþykki landeiganda ásamt fornleifaskráningu liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir lagningu strengjanna.

  12. 12. 740 Naustahvammur 49 - Sjótaka fyrir vatnsúðakerfi

    Mál 1906053 Allur ferill málsins

    Lagður fram póstur Björns Sveinssonar hjá Verkís hf, dagsettur 23. ágúst 2019, þar sem óskað er eftir heimild til að breyta áður samþykktri staðsetningu á sjótökumannvirki vegna vatnsúðakerfis hússins við Naustahvamm 49 á Norðfirði. Dælubrunnur er nú að öllu leyti utan lóðar við enda stálþils við suðurstafn hússins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að lagnir og inntaksbrunnur verði staðsettur utan lóðarinnar. Endanlegri afgreiðslu er vísað til hafnarstjórnar.

  13. 13. Lagning ökutækja við Strandgötu Eskifirði

    Mál 1907057 Allur ferill málsins

    Lagt fram að nýju erindi íbúa við Strandgötu 73 á Eskifirði er varðar ákvæði í umferðarsamþykkt, um bann við lagningu bíla við hluta Strandgötu. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar, dagsett 30. ágúst 2019.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til endurskoðunar umferðarsamþykktar og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að undirbúa endurskoðunina og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar.

  14. 14. 750 Hafnargata 1 - msókn um stöðuleyfi

    Mál 1905043 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Elis B. Eiríkssonar f.h. Loðnuvinnslunnar hf., dagsett 30. ágúst 2019, vegna útreiknings gatnagerðargjalda fyrir létta og ódýra dúkskemmu að Hafnargötu 1 á Fáskrúðsfirði. Óskað er eftir að við útreikning gatnagerðargjalda verði útreikningur skoðaður sérstaklega, t.d. með vísan til atvinnuuppbyggingar samkvæmt 6. gr. gjaldskrár gatnagerðargjalda. Þá er einnig bent á að í 12. gr. gjaldskrár gatnagerðargjalda eru tilgreind veruleg afsláttarkjör sem eflaust gætu átt við í þessu tilfelli.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að gatnagerðargjald er reiknað út samkvæmt nýtingarhlutfalli lóðar óháð byggingarkostnaði. Ósk um endurskoðun útreikninga gatnagerðargjalda er vísað til bæjarráðs.

  15. 15. Landbúnaðarnefnd - 24

    Fundargerðin í heild

    Samþykkt

    1. 15.1 Fjallskil og gangnaseðill 20191908024