Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 416

3. júní 2026, kl. 16:00 til 16:22, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (13)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Birgir Jónsson, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, forseti bæjarstjórnar
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Kosning forseta bæjarstjórnar 2026

    Mál 2605167 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:11:40

    Aldursforseti bæjarstjórnar stýrði kjöri.

    Þuríður Lillý Sigurðardóttir er tilnefnd sem forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og komu ekki fram önnur framboð.

    Þuríður Lillý Sigurðardóttir er því kjörin forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar með 9 atkvæðum og tók hún við stjórn fundarins.

  2. 2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar 2026

    Mál 2605168 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:12:36

    Nýkjörinn forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri varaforseta.

    Tilnefnd eru sem 1. varaforseti Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og 2. varaforseti Hrafn Bjarnason.

    Aðrar tilnefningar eru ekki bornar fram og eru þau kjörin varaforsetar með 9 atkvæðum.

  3. 3. Kosning bæjarráðs 2026

    Mál 2605169 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:13:32

    Forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri.

    Tillaga er borin fram um að aðalmenn bæjarráðs verði:

    Ragnar Sigurðsson formaður

    Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður

    Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður.

    Aðrar tillögur voru ekki bornar fram og er kosning bæjarráðs staðfest með 9 atkvæðum. Hrafn Bjarnason verður áheyrnarfulltrúi Miðflokksins. Varamenn bæjarráðs eru sbr. 39. gr. samþykkta sveitarfélagsins þeir aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður, í þeirri röð sem þeir skipuðu lista við sveitarstjórnarkosningar.

  4. 4. Kosning nefnda sveitarfélagsins 2026 - 2030 sbr. 62. gr.

    Mál 2605021 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:14:28

    Forseti bæjarstjórnar stýrði kjöri nefnda samkvæmt 62. gr. samþykkta.

    Borin er fram sameiginleg tillaga framboðanna í Fjarðbyggð að kjöri fulltrúa sbr. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, i, b-hluti, skipan til 4 ára.

    Fjölskyldunefnd:

    Aðalmenn:

    Ragnar Sigurðsson formaður D-lista

    Helga Rakel Arnardóttir varaformaður B-lista

    Sigrún Eva Grétarsdóttir B-lista

    Valborg Ösp Warén Árnadóttir S-lista

    Anna Guðný Gunnarsdóttir M-lista

    Varamenn:

    Íris Katla Guðmundsdóttir D-lista

    Björgvin Karl Gunnarsson B-lista

    Alma Eiðsdóttir B-lista

    Salome Rut Harðardóttir S-lista

    Þórunn Ólafsdóttir M-lista

    Skipulags- og framkvæmdanefnd:

    Aðalmenn:

    Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður B-lista

    Kristinn Þór Jónasson varaformaður D-lista

    Húnbogi Sólon Gunþórsson D-lista

    Hjördís Helga S Þóroddsdóttir S-lista

    Hafþór Eiríksson M-lista

    Varamenn:

    Sigurjón Andrés Jónasson B-lista

    Bryngeir Margeirsson D-lista

    Sóley Katrín Heiðarsdóttir D-lista

    Stefán Þór Eysteinsson S-lista

    Guðröður Hákonarson M-lista

    Hafnarstjórn

    Aðalmenn:

    Þórdís Mjöll Benediktsdóttir formaður D-lista

    Friðrik Jósepsson D-lista

    Sigurjón Andrés Jónasson varaformaður B-lista

    Birkir Snær Guðjónsson S-lista

    Baldur Marteinn Einarsson M-lista

    Varamenn:

    Ingunn Eir Andrésdóttir D-lista

    Sigurjón Rúnarsson D-lista

    Guðbjartur Hjálmarsson B-lista

    Adam Ingi Guðlaugsson S-lista

    Hafþór Eiríksson M-lista

    Stjórn Menningarstofu

    Aðalmenn:

    Birgir Jónsson formaður B-lista

    Tanja Tómasdóttir varaformaður D-lista

    Júlíus Óli Jacobesn M-lista

    Arndís Bára Pétursdóttir (áh) S-lista

    Varamenn:

    Bjarney Birta Bergsdóttir B-lista

    Hildur Ósk Pétursdóttir D-lista

    Elís Ármannsson M-lista

    Ásdís Helga Jóhannsdóttir (áh) S-lista

    Kosning skv. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, ii, skipan til 4 ára. Almannavarnarnefnd.

    Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

    Kosning skv. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, iii, tilnefningar og kosningar a-hluti skipan til 4 ára. Fulltrúar á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Aðalmenn:

    Ragnar Sigurðsson D-lista

    Þuríður Lillý Sigurðardóttir B-lista

    Stefán Þór Eysteinsson S-lista

    Hrafn Bjarnason M-lista

    Varamenn:

    Kristinn Þór Jónasson D-lista

    Birgir Jónsson B-lista

    Hjördís Helga S Þóroddsdóttir S-lista

    Alma Sigurbjörnsdóttir M-lista

    Aðrar tillögur eru ekki bornar fram og er tillagan samþykkt með 9 atkvæðum.

  5. 5. Ráðning bæjarstjóra 2026 - 2030

    Mál 2605170 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:18:12

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir ráðningu bæjarstjóra.

    Framlögð tillaga um að ráða Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra Fjarðabyggðar frá og með 1. júní 2026 út kjörtímabilið. Jafnframt er lagður fram til staðfestingar ráðningarsamningur við bæjarstjóra.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að ráða Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn ráðningarsamning Jónu Árnýjar Þórðardóttur með 9 atkvæðum. Bæjarráði er falið að undirrita ráðningarsamning við bæjarstjóra.

  6. 6. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2026

    Mál 2605183 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:19:36

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar.

    Framlögð drög að breytingum á samþykkt fyrir Fjarðabyggð sem felur í sér leiðréttingar og uppfærslur á 62. gr. samþykkta sveitarfélagsins.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa tillögu að breytingum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  7. 7. Aukaaðalfundur SSA 2026

    Mál 2605229 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:20:32

    Framlagt til kynningar fundarboð auka aðalfundar SSA sem haldinn verður fimmtudaginn 4. júní nk. ásamt kjörbréfi fyrir fulltrúa Fjarðabyggðar.

    Enginn tók til máls.

    Framlagt.

  8. 8. Fundaáætlun bæjarstjórnar

    Mál 2210125 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:21:00

    Forseti bæjarstjórnar lagði til að næsti fundur bæjarstjórnar verði haldinn fimmtudaginn 18. júní nk. kl. 16:00 og síðasti fundur bæjarstjórnar fyrir sumarfrí verði 25. júní kl. 16:00.

    Samþykkti bæjarstjórn tillögu með 9 atkvæðum.