Bæjarstjórn, fundur 366
19. desember 2023, kl. 12:00 til 12:05, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, varamaður
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Útsvar 2024
Mál 2311037 Allur ferill málsins
Forseti mælti fyrir breytingu á álagningarhlutfalli útsvars.
Vísað frá bæjarráði tillögu að breyttu álagningarhlutfalli útsvars 2024. Lagt er til að áður samþykkt álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2024, sem ákveðið er skv. 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 hækki um um 0,23% og verði eftir breytinguna 14,97%. Er þessi breyting gerð í samræmi við ákvæði um breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 15. desember 2023. Um er að ræða tilfærslu á milli tekjuskatts og útsvars og hefur ákvörðunin ekki áhrif á heildar skattbyrði einstaklinga.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir tillögu að breytingu á álagningarhlutfalli útsvars 2024 með 9 atkvæðum