Bæjarstjórn, fundur 310
31. mars 2021, kl. 12:00 til 12:12, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Sigurður Ólafsson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, varamaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Samkomulag um flutning þjónustu Hulduhlíðar og Uppsala
Mál 2103216 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:01:24
Bæjarstjóri mælti fyrir samningi.
Framlögð drög samnings heilbrigðisráðuneytis og Fjarðabyggðar um flutning á þjónustu Hulduhlíðar og Uppsala til Heilbrigðisstofnunar Austurland en með samningnum er starfsmönnum hjúkrunarheimilanna boðin áframhaldandi störf hjá heilbrigðisstofnuninni ásamt því að réttindi þeirra eru tryggð.
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fyrirliggjandi samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.