Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 912

22. september 2025, kl. 08:30 til 11:20, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 403 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 22. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þjóðlendumál kröfur óbyggðanefndar eyjar og sker

    Mál 2402163 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá lögmanni Ríkissjóðs vegna þjóðlendukrafna en fallið hefur verið frá hluta þeirra krafna sem voru fram lagðar í upphaflegri kröfugerð ríkisins.

    Kröfur Ríkissjóðs í lönd Fjarðabyggðar hafa verið dregnar til baka.

  2. 2. Viljayfirlýsing tengt LIFE umsókn

    Mál 2509143 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar viljayfirlýsing Fjarðabyggðar vegna Life umsókn sem tengist Breiðdalssetri og rannsóknarsetri Háskólans á Breiðdalsvík og snýst um nýtingu fjarvarma.

    Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna.

  3. 3. Samstarf í öldrunarmálum milli Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar

    Mál 2507019 Allur ferill málsins

    Farið yfir framgang viðræðna við Heilbrigðisstofnun Austurlands um viljayfirlýsingu vegna samstarfs í öldrunarmálum.

  4. 4. Úrgangsmál - gerð útboðsgagna

    Mál 2505110 Allur ferill málsins

    Fjallað um útboð í meðhöndlun úrgangs.

    Bæjarstjóra og sérfræðingi á fjármálasviði falið að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð.

  5. 5. Forkaupsréttur fasteigna

    Mál 2508036 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að uppfærðum forkaupsréttarlista fasteigna í sveitarfélaginu.

    Bæjarráð frestar afgreiðslu listans og felur bæjarritara að yfirfara hann og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  6. 6. Íbúakönnun 2025

    Mál 2509144 Allur ferill málsins

    Fjallað um viðhorfskönnun til þjónustu sveitarfélagsins en undanfarin ár hefur Gallup mælt viðhorf íbúa til þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins.

    Bæjarráð samþykkir að taka ekki þátt í viðhorfskönnun á þessu ári.

  7. 7. Nýr vefur fyrir Fjarðabyggð

    Mál 2303098 Allur ferill málsins

    Bæjarráð opnaði með formlegum hætti nýjan vef Fjarðabyggðar. Með vefnum er stigið stórt skref í átt að nútímalegri upplýsingagjöf og aukinni þjónustu við íbúa, fyrirtæki og aðra sem sækja sveitarfélagið heim.

  8. 8. Númerslausir bílar

    Mál 2304069 Allur ferill málsins

    Farið yfir ráðstafnir og aðgerðir til að fjarlægja bíla sem standa númerslausir og eru ekki ökuhæfir víðsvegar um sveitarfélagið.

  9. 9. Beiðni um styrk vegna afnota þorrablótsnefndar af íþróttahúsi 2026

    Mál 2509146 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá formanni Þorrablótsnefndar Reyðarfjarðar um styrk vegna þorrablóts Reyðfirðinga á árinu 2026.

    Bæjarráð samþykkir að veita styrk móti afnotum af íþróttahúsinu á Reyðarfirði, tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  10. 10. Beiðni um styrk vegna afnota hjónaballs af Félagsheimilinu Skrúð

    Mál 2509089 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá formanni Hjónaballsnefndar Fáskrúðsfjarðar þar sem óskað er eftir styrk til greiðslu fyrir afnot af félagsheimilinu Skrúð vegna árlegs hjónaballs 2026.

    Bæjarráð samþykkir að veita styrk móti afnotum af Félagsheimilinu Skrúð á Fáskrúðsfirði, tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  11. 11. Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2025

    Mál 2509133 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður 1. október.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúar sveitarfélagsins mæti á fundinn.

  12. 12. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Fundargerð 984. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.