Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 770

24. október 2022, kl. 08:30 til 11:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 341 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 24. október staðfest með 9 atkævðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026

    Mál 2205271 Allur ferill málsins

    Farið yfir fyrstu drög að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023-2026.

    Vísað til fjármálastjóra til frekari vinnslu fram að næsta fundi bæjarráðs.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2204062 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál rekstraryfirlit yfir rekstur og fjárfestingar Fjarðabyggðar janúar - ágúst 2022 auk yfirlit yfir launakostnað og skatttekjur janúar - september 2022.

  3. 3. Opinber heimsókn forsetahjónanna til Fjarðabyggðar 2022

    Mál 2210161 Allur ferill málsins

    Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og frú Eliza Reid, koma í opinbera heimsókn til Fjarðabyggðar 22. - 24. nóvember 2022. Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála ásamt fyrstu drögum að dagskrá heimasóknarinnar.

    Fram lagt og kynnt.

  4. 4. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands

    Mál 2210026 Allur ferill málsins

    Fram lagt fundarboð aðalfundar HAUST 2022 haldinn 26. október 2022 í Múlanum á Norðfirði.

    Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  5. 5. Íþrótta- og tómstundanefnd - 107

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 17. október lögð fram til kynningar.

    1. 5.1 Gjaldskrár sundlauga 2023
    2. 5.2 Gjaldskrá skíðasvæðis 2023
    3. 5.3 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2023
    4. 5.4 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2023
    5. 5.5 Gjaldskrá íþróttahúsa 2023
    6. 5.6 Launaáætlun og rekstraráætlun íþróttamannvirkja og frístundaþjónustu2023
    7. 5.7 Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð
    8. 5.8 Ungmennaráð 2022
    9. 5.9 Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar