Bæjarráð, fundur 717
7. júlí 2021, kl. 12:00 til 12:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 316 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu.
Enginn tók til máls.
Fundargerð bæjarráðs frá 7. júlí lögð fram til kynningar.
Dagskrá
-
1. Þróunarverkefni og atvinnulíf
Mál 2106206 Allur ferill málsins
Lögð fram sem trúnaðarmál drög að viljayfirlýsingu vegna framleiðslu á grænum orkugjöfum á landi.
Bæjarráð samþykkir drög viljayfirlýsingar og felur bæjarstjóra að ljúka henni og undirrita og senda bæjarráði.
-
2. Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður
Mál 2012075 Allur ferill málsins
Verktakinn Og Synir ehf. hafa sagt sig frá tilboði í byggingu á þjónustumiðstöð á Fáskrúðsfirði. Framkvæmdasvið óskar eftir heimild til að ganga til samninga við verktaka á svæðinu miðað við kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra framkvæmdasviðs að leita samninga við verktaka á svæðinu um byggingu hússins á grundvelli kostnaðaráætlunar.