Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 565

21. maí 2018, kl. 09:30 til 10:50, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 246 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 565 og 566 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 565 frá 21.maí 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Eistnaflug 2018

    Mál 1710039 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Karli Óttari Péturssyni vegna Eistnaflugs 2018.

    Farið er þess á leit að hátíðin fái afnot af Kirkjumel á meðan henni stendur fyrir starfsmenn, að greiddur verði styrkur sem ákveðið var af hálfu bæjarins að veita og felld sé niður skuld frá fyrra ári.

    Bæjarráð samþykkir að starfsmenn Eistnaflugs fái afnot af Kirkjumel meðan á hátíðinni stendur. Veittur verður styrkur á móti skuld frá fyrra ári um 933.000 kr. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  2. 2. Kaup á fasteignum á Eskifirði vegna frummats ofanflóðavarna.

    Mál 1707111 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Ofanflóðasjóðs vegna uppkaupa á tveim fasteignum á Eskifirði vegna ofanflóðavarna við Lambeyrará.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra í samráði við sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs uppkaup eignanna sbr. ákvörðun Ofanflóðasjóðs.

  3. 3. Fjárlög 2017 - Ofanflóðavarnir

    Mál 1702040 Allur ferill málsins

    Framlagt svarbréf Umhverfis- og auðlindaráðuneytis um framkvæmdir við ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð, en þar kemur m.a. fram að hafnar verði framkvæmdir við Urðabotna 2019 en aðrar framkvæmdir síðar.

    Bæjarráð ítrekar fyrri samþykktir sínar varðandi nauðsyn þess að lokið sé við ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð.

  4. 4. Fjarðafasteignir slf - slit á felaginu 2018

    Mál 1804084 Allur ferill málsins

    Framlög fundargerð í Fjarðafasteignum slf. til slita á félaginu. Upphaflegur tilgangur félagsins er ekki lengur fyrir hendi og því hefur félagið takmarkaðann tilgang og því talið rétt að slíta því.

    Bæjarráð staðfestir að félaginu sé slitið. Fundargerð er staðfest með undirritun.

  5. 5. Sala á eignarlóð - Strandgata 19

    Mál 1805095 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Kristjáns Sigurðarsonar þar sem hann býður eignalóð sína að Strandgötu 19 á Eskifirði til sölu og óskar jafnframt eftir að gerður verði leigusamningur um afnot af lóð.

    Bæjarráð samþykkir kaup á lóðinn í samræmi við viðmið um uppkaup lóða og felur fjármálastjóra uppkaup lóðarinar. Jafnframt er skipulags- og byggingarfulltrúa falin gerð lóðarleigusamnings.

  6. 6. Forkaupsréttur að Eyrargötu 9 og 11 Neskaupstað

    Mál 1805097 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Réttingarverkstæði Sveins um forkaupsrétt að fasteignunum að Eyrargötu 9 og 11 í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti á fasteignunum að Eyrargötu 9 og 11.

  7. 7. Varðar úthlutaðan byggðakvóta á Auði Vésteins SU-88 2017-2018

    Mál 1805086 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Öldu Agnesar Gylfadóttur þar sem fram kemur að útgerð Auðar Vésteins SU-88 hefur ákveðið, að nýta ekki úthlutaðan byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018.

    Bæjarráð vísar erindi útgerðar Auðar Vésteins til Fiskistofu.

  8. 8. Ný bæjarskilti

    Mál 1805081 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar teikningar af bæjarkjörnum Fjarðabyggðar sem verða partur af nýjum bæjarskiltum.

    Vísað til áframhaldandi vinnslu hjá upplýsingafulltrúa.

  9. 9. Víkingarhótel í Fjarðabyggð

    Mál 1805019 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur Asgard Hotel þar sem óskað er stuðnings Fjarðabyggðar við að byggja Víkinga hótel í Fjarðarbyggð.

    Bæjarráði vísar hugmyndinni til frekari skoðunar atvinnu- og þróunarstjóra.

  10. 10. Styrkur til glímudeildar vegna góðs árangurs

    Mál 1804106 Allur ferill málsins

    Framlagt þakkarbréf frá Glímudeild Ungmennafélagsins Vals vegna stuðnings bæjarins til deildarinnar.

  11. 11. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2018

    Mál 1804042 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 2. fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  12. 12. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2018

    Mál 1805082 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Héraðsskjalsafns Austurlands frá 26. febrúar og 23. apríl sl.

    Vísað til menningar- og safnanefndar.

  13. 13. Fundargerðir stjórnar SSA 2018

    Mál 1802003 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 9. fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 14. maí 2018.