Bæjarráð, fundur 435
13. júlí 2015, kl. 12:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 183 liður 7
Fundargerð bæjarráðs, nr. 435 frá 13. júlí 2015, lögð fram til umræðu og kynningar.
Dagskrá
-
1. Norðfjörður - tunna á enda grjótgarðs
Mál 1502047 Allur ferill málsins
Fundargerð frá opnun tilboða í gerð tunnu á skjólgarð Norðfjarðarhafnar dagsett 8. júlí 2015. Í verkið bárust tvö tilboð, frá Ísar ehf og Hérðasverki ehf. Lægra tilboðið átti Héraðsverk upp á 36,5 millj.kr. eða 110,4% af kostnaðaráætlun sem var 31,1 millj.kr. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
2. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2015
Mál 1502053 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð 829. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 3.júlí.
-
3. Hafnarstjórn - 153
Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. júlí sl. samþykkt í umboði bæjarstjórnar.
- 3.8 Björgunarbátur á Fáskrúðsfirði1506176