Bæjarráð, fundur 382
14. apríl 2014, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 154 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Liður 1 í fundargerð tekinn sérstaklega til atkvæðagreiðslu en forseti bæjarstjórnar vék af fundi meðan hann var afgreiddur.
Fundargerð bæjarráðs, nr.382 frá 14. apríl 2014, utan liðar 1. samþykkt með 9 atkvæðum.
Liður 1 í fundargerð samþykktur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Nýtingarleyfi og upplýsingar um boranir vegna vinnslu grunnvatns fyrir vatnsveitu í Fjarðabyggð
Mál 1202065 Allur ferill málsins
Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar og Guðmundur Þorgrímsson tók sæti hans.
Þennan lið dagskrár sat jafnframt Hilmar Gunnlaugsson lögmaður og fór yfir framlagðan úrskurður um gildi nýtingarleyfis á grunnvatni í Norðfirði.
-
2. Klasasamtarf
Mál 1404056 Allur ferill málsins
Jóna Árný Þórðardóttir frá Gagnráð sat dagskrárlið og kynnt hugmyndir að klasasamstarfi fyrirtækja og einstaklinga í Neskaupstað.
-
3. Beiðni um samþykki Fjarðabyggðar um sölu á landi - Efri Skálateigur
Mál 1404035 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Lindarbrekkufrænkum ehf. fyrir hönd Vilbergs Einarssonar þar sem óskað er samþykkis fyrir sölu á 11,51 ha. spildu úr jörðinni Efri-Skálateigur 1.
Vísað til skipulags- og byggingarfulltrúa til umsagnar.
-
4. Beiðni um sólarhrings opnun líkamsræktarinnar á Eskifirði
Mál 1403028 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkti á 380. fundi sínum að vísa málinu til frekari umfjöllunar. Fyrir liggur minnisblað frá íþrótta- og tómstundafulltrúa. Stofn- og rekstrarkostnaður nemur um 500.000 kr. Fræðslu- og frístundanefnd hafði hafnað opnun.
Bæjarráð samþykkir að opnunartímar íþróttamiðstöðva- og sundlauga verðir skoðaðir í haust samhliða ósk bréfritara um sólahringsopnun líkamsræktarmiðstöðvarinnar á Eskifirði.
-
5. Innlausn lóðarinnar Fossgata 3
Mál 1312061 Allur ferill málsins
Fyrir liggur ósk frá Tandrabergi um innlausn á lóð.
Framlögð umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa um kaup á lóðinni Fossgata 3 Eskifirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við lóðarhafa á grundvelli þess að innlausnarverð renni til uppbyggingar í Naustahvammi í Neskaupstað.
-
6. Mótmæli vegna ákvörðun bæjarráðs
Mál 1404045 Allur ferill málsins
Framlagt bréf starfsmanna leikskólans Kærabæjar um ákvörðun bæjarráðs um að skipa sameiginlegan stjórnenda yfir leik- og grunnskóla tímabundið til eins árs.
Bæjarráð bendir á að um sé að ræða tímabundna lausn til eins árs sem sé til reynslu og sé í takti við þá vinnu sem unnin hefur verið vegna skólamiðstöðvarinnar og sameiginlegs skólastarfs.
-
7. Framtíðarfyrirkomulag alþjónustu um tengingu við almenna fjarskiptanetið
Mál 1404036 Allur ferill málsins
Framlögð gögn um fjarskiptaþjónustu í dreifðum byggðum og hlutverk Fjarskiptasjóðs og samlegð með öðrum veitufyrirtækjum vegna lagna.
-
8. 481.mál til umsagnar frumvarp til laga um örnefnefni(heildarlög)
Mál 1404053 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um örnefni.
-
9. Stjórnarfundir StarfA 2014
Mál 1403069 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð Starfsendurhæfingar Austurlands frá 21. mars sl.
Vísað til félagsmálanefndar til kynningar.
-
10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 91
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. apríl lögð fram til kynningar.