Bæjarráð, fundur 367
9. desember 2013, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 146 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdirmar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Eiður Ragnarsson, Stefán Már Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 9. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2013 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1305034 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið dagskrár.
Fram lagt yfirlit yfir rekstur sveitarfélagsins og stofnana fyrstu 10 mánuði ársins 2013.
Fjármálastjóri kynnir yfirlit. Yfirlit lagt fram sem trúnaðarmál.
-
2. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Mál 1104080 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að viðauka við samning um uppbyggingu safns í franska spítalanum á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar staðfestingu hans til bæjarstjórnar.
-
3. Minnt á endurskoðun verkfallslista
Mál 1312013 Allur ferill málsins
Fyrir 1.febrúar ár hvert þarf að birta lista yfir þá starfsmenn sveitarfélagsins sem ekki hafa verkfallsheimild.
Núverandi listi lagður fram til umræðu en hann heldur gildi sínu þar til nýr er auglýstur.
Bæjarráð samþykkir að áður birtur listi haldi gildi sínu.
-
4. 197.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um seinkun klukkunnar og bjartari morgna
Mál 1312036 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar tillaga til þingsályktunar um seinkun klukkunnar og valin verði hentug tímasetning til þess að ráðast í aðgerðina, innan árs frá samþykkt tillögu þessarar, að lokinni tilhlýðilegri kynningu í þjóðfélaginu ásamt undirbúningi. Umsagnarfrestur er til 7.janúar 2014.
-
5. 186.mál til umsagnar frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn)
Mál 1312035 Allur ferill málsins
Fram lögð beiðni Alþingis um umsögn um frumvarp til laga um húsaleigubætur fyrir námsmenn.
Frestur til umsagnar er veittur til 19.desember.
Vísað til félagsmálanefndar.
-
6. 102.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um könnun á hagkvæmni þess að draga úr plastpokanotkun
Mál 1312038 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar tillaga til þingsályktunar um könnun á hagkvæmni þess að draga úr plastpokanotkun. Alþingi ályktar að skora á umhverfis- og auðlindaráðherra að láta kanna þjóðhagslega hagkvæmni þess að minnka plastpokanotkun hér á landi. Gerð verði könnun á því hvaða kostir eru hagkvæmir og í því tilliti verði.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
7. Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-2014
Mál 1203050 Allur ferill málsins
Fjarðalistinn breytir nefndaskipan.
Guðfinna Kristjánsdóttir hættir sem varamaður í fræðslu- og frístundanefnd og Margrét Þorvaldsdóttir tekur sæti hennar.
-
8. Starfslíðan starfsmanna Fjarðabyggðar TRÚNAÐARMÁL
Mál 1305121 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat Arney Einarsdóttir frá fyrirtækinu HRM. Fór hún yfir niðurstöður vinnustaðagreiningar sem gerð var meðal starfsmanna Fjarðabyggðar í haust. Vinnustaðagreiningin er trúnaðarmál en almennar upplýsingar um niðurstöður eru kynntar á heimasíðu sveitarfélagsins.
-
9. Ofanflóðavarnir í Fjarðabyggð
Mál 1302105 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrá sat Hafsteinn Pálsson frá Ofanflóðasjóði, mannvirkjastjóri og formaður eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Umræða tekin um framkvæmdir vegna ofanflóðavarna og áætlanir vegna þeirra í Fjarðabyggð.