Bæjarráð, fundur 298
25. júní 2012, kl. 09:00 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 118 liður 12
Fundargerðir bæjarráðs á sumarleyfistíma bæjarstjórnar lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu.
Dagskrá
-
1. Ársreikningar 2011 - Hulduhlíð
Mál 1205059 Allur ferill málsins
Ársreikningur Hulduhlíðar vegna ársins 2011 lagður fram til kynningar. Ársreikningur var staðfestur í félagsmálanefnd þann 14.maí.  Rekstrarniðurstaða er neikvæð sem nemur um 19.m.kr. Ástæður þessa eru einkum tvíþættar; hækkanir lífeyrisskuldbindinga og léleg nýting á rýmum. Ekki eru miklar breytingar á efnahagsreikningi milli ára. Framkvæmdastjóri hóf nýverið talningu á birgðum en slík talning hefur ekki farið fram áður.
-
2. Ársreikningar 2011 - Uppsalir
Mál 1205060 Allur ferill málsins
Ársreikningur Uppsala vegna ársins 2011 lagður fram til kynningar. Ársreikningur var staðfestur á fundi félagsmálanefndar þann 14.maí. Rekstrarniðurstaða er neikvæð sem nemur um 3.m.kr. Hækkun er á lífeyrisskuldbindingum á milli ára líkt og í Hulduhlíð en upphæðin nemur um 2.m.kr. Daggjaldatekjur jukust á árinu en aðrir tekjuliðir eru sveiflóttari. Mjög góð nýting var bæði á dvalar- og hjúkrunarýmum á síðasta ári.
-
3. Fjárhagsstaða Fjarðaferða ehf. - frjáls nauðasamningur
Mál 1110173 Allur ferill málsins
Framlögð gögn til upplýsinga vegna sölu Fjarðaferða en búið er að ganga frá sölu fyrirtækisins.
-
4. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Mál 1104080 Allur ferill málsins
Kynnt afgreiðsla eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá fundi 11.júní vegna málefna sem vísað var til nefndarinnar til afgreiðslu vegna Franska spítalans á Fáskrúðsfirði.
-
5. Fundagerðir yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar vegna forsetakosninga 2012
Mál 1206093 Allur ferill málsins
Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 20.júní lögð fram og samþykkt.
-
6. Fundur með fjárlaganefnd 2012
Mál 1206110 Allur ferill málsins
Bréf Alþingis frá 18.júní þar sem fjárlaganefnd kynnir áherslur sínar í samskiptum við sveitarfélög vegna fjárlagagerðar en í bréfinu er óskað eftir sjónarmiðum frá sveitarfélögum vegna fjárlagagerðar næsta árs. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
7. Leyfi til dúntekju í æðarvarpi í ós-hólma Eskifjarðarár
Mál 1206112 Allur ferill málsins
Sigurður Baldursson sækir um heimild til dúntekju í óshólma Eskifjarðarár. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að ræða við umsækjanda og óskar jafnframt eftir umsögn mannvirkjastjóra sem lögð verður fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
8. Málverk að gjöf
Mál 1206017 Allur ferill málsins
Systkinin Margrét Halldóra og Kjartan Sveinsbörn hafa fært Fjarðabyggð að gjöf, málverk af þorpinu á Reyðarfirði. Bæjarráð færir þeim systkinum bestu þakkir fyrir gjöfina.
-
9. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar gögn um áform Laxa um fiskeldi í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Vísað til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.
-
10. Umsókn um færslu á starfsleyfi af HB Granda hf á Fiskeldi Austfjörðum ehf.
Mál 1206124 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf Umhverfisstofnunar frá 19.júní þar sem heimilað er að starfsleyfi HB Granda fyrir kvíaeldisstöð í Fáskrúðsfirði verði flutt á fyrirtækið Fiskeldi Austfjörðum ehf.
-
11. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Mál 1201123 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 32 frá 18.júní lögð fram til afgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar. Bæjarráð staðfestir fundargerðina.